Chicago Fabrications specializes in custom furniture manufacturing using reclaimed materials specifically reclaimed barn wood.
Úr aðfangabók: Skúfhólkur úr silfri, l. 5,7, þverm. 1,8 cm., tvöfaldur: ytra borðið er gagnskorið og drifið blóm, og alt grafið faglega: breiðist kringum hólkinn. Bekkir eða flatir hringir með tiglum ofanvið og neðanvið. Innra borðið sljett, gylt og skygt. Neðaní er settur eins konar kragi með 8 drifnum og gröfnum laufum, er standa út, og annar ofaní efri enda með sams konar laufum, sem standa upp: laufalaus er hólkurinn 4,8 cm. að l. Hólkur þessi mun hafa verið og vera einstakur í sinni röð. Hann er eptir Hall(d)ór gjörlara, sem svo var nefndur (c. görtler), föður Dahlhoffs, sem nú er gullsmiður í Reykjavík. Líklega gerður um 1850.