Við þurfum að hreinsa smá til hjá okkur svo við komum jólakertunum fyrir.. já jólakertum.Sumir gleðjast að það skuli vera að styttast í þessa hátíð ljóss og friðar.En svona er hringurinn hjá okkur, við gerum sumarkertin í janúar og jólakertin í júlí og ágúst.Svo nú ákváðum við að bjóða upp á afslátt af sumar kertunum á vefsíðunni upp á 30% með kóðanum Sumar22. Vonum við að sem flestir geti nýtt sér þennan afslátt. Fyrir þá sem hafa fyrir því að koma til okkar þá er 30% afsláttur af öllum vörum í
Vinsæl kerti yfir sumarið Lavender ilmkertin Þurfum við eitthvað að segja um þenna ilm.Ugly ilmkertin með sítrusilminum verið mjög vinsæl í útilegurnar.Sjávardraums ilmkertin eru alltaf vinsæl.Flauels Rómantík. Ilmkerti með mildum blómaangannSvona mætti lengi telja.Kokteilar - Íslensk ilmkertihttps://www.wix.app/stores/a9408959-b153-45d6-84f0-d54da0697f8d/catalog/208461cb-4b4e-6b2d-b027-0f3c801984a1?d=https://www.tofraljos.is/product-page/kokteilar-íslensk-ilmkertiSvo komu þessir ilmir inn og h
Það er mikið búið að ganga á hjá okkur hér á Fossheiðinni sem er ekki frásögum færandi. Þannig að við höfum ekki verið mikið á staðnum þetta sumarið og haustið, Gerðum tilraun til að vinda ofan af okkur með smá skreppu í heitari lönd en þar var of heitt og við reyndar hvíldumst vel en við komum ekki brún heim :) Við sjáum fram á bjartari tíma vonandi, næsta vika mun skera úr hvort við séum komin í lægð í veikindum föður míns og getum snúið okkur alfarið a vinnu. Við gáfum okkur tíma til að panta
Ilmlausir.
Ég kalla orðið nóvember hinn svarta. jú það eru endalaus tilboð og dagarnir heita ýmsum nöfnum Singles day, Black Friday og er ekki líka Cyber Monday... en eru þetta allt afslættir erum við að kaupa til að kaupa. Þessi ameríska hefð sem virðist vera tröllríða heiminum er ótrúleg. Ég er mjög treg til að hlaupa á eftir þessu en tók slaginn í dag á Singles Day. En með þessum afslætti sem ég er með er ég bara að ganga á mín laun, ég sem framleiðandi get illa keppt við að gefa 60% afslátt, en það er
Já þú last rétt, nú þegar nálgast jól þá er minn hugur farinn að snúast um hvað ég eigi að hafa á næsta ári.. hugmyndirnar hrúgast upp að vanda. Það er nefnilega komin vorhugur í minn haus :)En hér er samt smá sýnishorn af því sem við höfum verið að gera síðustu vikur og verðum að út þessa. AðventukertinAðventukertin okkar með eða án ilms hafa notið mikillar vinsældar og við höfum gaman að búa þau til sérstaklega ef við fáum frjálsar hendur í að hanna þau. Í þau rúm 20 ár sem við höfum verið að
Að breyta til, eins og margir hafa séð þá höfum við verið að koma inn með soyakerti í kertaglösum. Við bætum við eftir helgina en þá koma þrír af okkar vinsælustu ilmum í glösum.Þeir verða komnir á síðuna okkar á Mánudaginn uppúr hádegi. Ég hef oft verið spurð afhverju ég sé ekki að gera kerti í glösum, ástæðan er einföld mér finnst alltaf gaman að glíma mið liti og ilm. Við erum núna að hella okkur útí að gera kerti sem verða til sölu eftir áramótin. Ástæðan er sú að ég er að fara í axlaraðge
Hér er búið að vera líflegt í sölu á kertunum, og þökkum við fyrir hversu vel er tekið á móti okkur. Þetta er svo sem ekki okkar fyrsta ár heldur okkar 20. starfsár og við erum þakklát að hafa lifað svo lengi í hörðum heimi viðskipta. Það hefur oft tekið á að keppa við erlenda framleiðendur. Við erum með allskonar hliðarverkefni með kertagerðinni eins og þessar ilmstangir sem eru alltaf til hjá okkur en við vijum helst fá glös til að fylla á, því okkur finnst nóg um sóunina sem er í öllu þessi g
Við erum að bæta við í hillurnar okkar svo við verðum ekki uppskroppa þegar líður að vori og Frú Elínborg verður handlama, þá er ekkert unnið í kertagerðinni. Vorum að bæta við tveimur ilmum sem við erum búin að vera að vinna í annsi langan tíma. Hér koma þeir, annar heitir Norðurljós, það má ekki rugla honum saman við Ilmkerti með sama heiti sem er selt í Yogasálum á Selfossi. Svo er það yndislegi ilmurinn Vetrarsólstöður. Hann er alltaf í uppáhaldi, er búin að þroskast og gefur okkur sól í sál
Við höfum ekki tekið neinar tásumyndir enda nóg að gera að hitta góða vini og spjalla.Mikill hiti og raki fyrir svona hreinræktaða íslendinga með kalt blóð :), við höfum verið á flótta undan sólinni því skal engann undra þó við komum skjanahvít heim úr þessari paradís. Ég er sjálf lítið á fésinu en þeir sem vilja fylgjast með okkur þá er ég Frú Elínborg þar og oft eru settar skemmtilegar myndir af mér og mínum ekta maka af honum,Reyndar er hausinn minn á fullu hér að spá í ilmi og nú fer ég að l
Já við erum að fara á aðeins aðra línu en við höfum verið á,og mun það sjást að haustinu hvað um er að ræða.Eins erum við að vinna í útikertum sem eru friðarkerti að vetri en hægt að brúka sem "Ugly sítrónukerti" að sumri. Þau eru passa í stjaka sem við munum líka hafa til sölu og hægt er að nýta aftur og aftur.Hér á myndinni til hægri er mynda af annari gerðinni af stjökum sem við munum vera með til sölu.Sólin hefur gælt við Suðurlandið undan farnar vikur og því er lítið búið að vinna hér í ker
kannski jólum :) og við ætlum sem áður að taka niður öll sumar kerti úr hillunum og af vefsíðunni. Við gerðum það ekki í fyrra og því fengu viðskiptavinirnir oft mikinn valkvíða þegar þeir stigu inn hér eða leituðu á vefsíðunni. Þannig að þeir sem ætla að ná að versla kertin sem tilheyra sumarilmum ættu að drífa sig. Hér er nokkur kerti sem munum hverfa úr hillunum og sjást ekki fyrr en fer að vora á ný.Við höfum smá von um að geta afhent útikertastjakanna áður en við tökum frí í September. Vi
þetta á víst við okkur flest þessa daganna, það er eins og við séum að lifa í vísindaskáldsögu svo óraunverulegt en svo satt. En það styttir upp og lífið á eftir að verða kunnuglegt á ný og við getum brosað og faðmast. Kannski verður það aldrei eins því þetta mun marka yngri kynslóðina til langframa. En vonandi verður þetta saga sem verður eins og ævintýri í augum barnabarna þeirra. Við framleiðum allskonar ilmkerti og mikið af sérpöntuðum í lita þemum eða ilmi. Á þessum tíma fáum við mikið af
Við erum farin að hugsa í sumarilmum þó úti sé myrkur og snjór. Restina af Ugly kertunum uppí hillur, en við erum hætt þeirri framleiðslu, því það tekur of mikinn tíma að hreinsa krukkurnar til að gera þær söluhæfar og við höfum einbeitt okkur að stórum útikertum sem verða með sítrusilm og nýtum afgangsvaxið í þau.Við munum fjölga glasakertum fram á vorið. Þetta verða fleiri kokteililmir sem eru vinsælir og gera góða kvöldstund betri.Ég er í smá pásu frá framleiðslu þar sem ég fór í aðgerð á öxl
Hjá mér er svarið nei.. enda fá margir mínir nánustu kerti frá mér, skrítið kannski :) Við erum enn að bæta við í Jólakertin og nú fer Noel að koma, hann var ekki gerður í fyrra en nú kemur hann aftur, þetta er vinsæll ilmur og sannkallaður jólailmur. Hef mikið verið með hann í aðventukertum. Aðventukertin okkar þetta árið verða eingöngu með Kanil, Jólaepli og Jólatré. Það fer að verða síðasti séns að panta þau. Þau eru bara framleidd fram í miðjan nóvember vegna þess að þá erum við farin að hug
Já það er annsi mikið búið að vera að gera hjá okkur, bæði í okkar hefbundnu kertum og svo sérpöntunum. Þannig að við höfum ekki alltaf haft tíma til að láta heyra frá okkur. Enn ég ákvað að skella fáeinum línum á blað svo þið haldið ekki að við séum ekki að útbúa ljós fyrir ykkur kertaelskendur. Við framleiddum helling af Kanilstangakertunum en þau eru öll uppseld núna. Því miður, vitum ekki hvort við komust í að framleiða fleiri fyrir jól.Eins og sést á myndinni þá er nóg að gera og þessi kert
Ég hef verið að gera kerti sem aðeins eru gerð einu sinni á ári, og yfirleitt bara 3 í setteringu. Þessi kerti eru yfirleitt ekki sett í netverslunina, þar sem þau eru mis auðveld í flutningi og vegna þess hversu fá þau eru. Ég er farin að gera Lavenderinn í glösum fyrir sumarið því ég reikna með að við fáum alveg nóg af lúsmýi hér á Suðurlandi. Svo er að gera "Ugly kertin" en það eru sterk sítrónukerti til að hafa úti við. Mér hefur dottið í hug að bæta við þessa flóru reykelsum, hef ekki haft
einn vinsælasti ilmurinn árið 2020, en kannski ekki bara hreinn Lavender.Við höfum verið að blanda ýmsum ilmum við hann og fengið út unaðslegar blöndur og núna síðast Lavender og Appelsínu þessi blanda er svo full af gleði svo undarlegt er að síðustu vikur hef ég sótt í að gera mikið af ljósum skærum litum í kertin mjög líklega er það vegna þess að það er búið að vera mikið um að vera sem er kannski miður skemmtilegt að fylgjast með og mér finnst ljós og litrík kerti gefa svo mikla birtu frá sér
Nýir ilmir komnir á síðuna, Ilmkerti, íslensk hönnun. Veljum íslenskt láttu það ganga !
Við tókum okkur langt frí þetta haustið vegna persónulegra ástæðna en erum komin af stað. Byrjuðum á að taka til hendinni í Kertagallerýinu og máluðum það en það hefur ekki verið gert síðan við opnuðum 2007. Þeir sem þekkja vel til sjá munin en panellinn var brún og því mun dekkra en nú kominn þessi ljósi litur og við alsæl :) Við ætlum að takmarka það sem við gerum af minnstu kertunum og um leið að finna lausn á því að pakka kertunum í plast en það höfum við gert til að hlífa kertunum í flutnin
Við tókum okkur til og fórum í þriggja daga rúnt um Suðurland. Fengum gott veður og prufuðum að gista á hótelum. Þar sem þetta var svona hugdetta hjá okkur var ekkert planað og við fórum með það hugafar að við hlytum að fá inni einhversstaðar :)Við ákváðum þegar að fara austur frá Selfossi, enda langt síðan við fórum lengra en að Vegamótasjoppunni. Svo var spurninginn hvort við ættum að fara upp í land eða halda meðfram ströndinni. Við tókum ströndinna og ætluðum að kikja á Seljalandsfoss en þa
Já við viljum meina það, enda erum við að fylla hillurnar af vor og sumarilmum.Meðan úti snjóar þá ilmar hér allt af blómaangan sem vekur upp bjartsýni á betri tíð.Við munum loksins kynna Vanillulínuna okkar þetta vorið. Hún hefur verið lengi í vinnslu en við munum leggja áherslu á hana og Lavenderlínuna, enda eru þetta blöndur sem við erum ein með og fást ekki annars staðar. Við munum fara að merkja það sem við blöndum sjálf og ekki fæst annars staðar. Við höfum ekki gert það, verið feimin við
Gjafir Jarðar á Laugarveginum, Fittnessbilið í Hveragerði,Skálinn á Stokkseyri, Fótaðgerðastofan Hæll og Tá á Fáskrúðsfirði. Svo er nýr söluaðili á Akureyri, Innrömmun og Handverk á Draupnisgötu 1. Þegar vestar kemur er Húnabúðin á Blöndósi. Vil ég endilega benda Sunnlendingum, Austfirðingum og Norðlendingum að nýta sé þessa söluaðila, að versla heima í héraði er það besta sem þú gerir fyrir þitt nærsamfélag til að halda þjónustustigi í sveitafélögunum. Af kertagerðinni og mér er það að segja a
Fyrir okkur sem eldri eru finnst okkur varla líða hálft ár milli jóla. Sem gerir allt mjög hratt, enda segjum við oft hver setti smjör á kaðalinn. Eins er með jólaundirbúning hér í kertagerðinni við höfum varla komi kertunum í sölu að mikið af þeim eru búin. Við viljum hvetja fólk sem ætlar að fá kerti send til sín fyrir jólin að fara að panta, því nú lenda jólin á helgi. Og við munum ekki senda pakka eftir 17 des, nema viðskiptavinurinn sætti sig við að fá pakkann eftir jól. Við viljum vekja at
Þá er Sex on the beach og Suðræn Sítróna komin í hilluna, endilega kíkið á Sumarilmina okkar :)
Það bættist einn við í gær, en það er Skálinn á Stokkseyri :) Er það von okkar að Stokkseyringar og nágrannar taki vel í að fá kertin til sín í sína heimabyggð. Aðrir sem eru með kertin okkar til sölu í dag er Gjafir Jarðar á Laugaveginum, Húnabúðin á Blöndósi, Frú Anna á Fáskrúðsfirði og Fitnessbilið í Hveragerði.Við viljum heldur vera í litlum búðum þar sem við erum ekki í neinni verksmiðjuframleiðslu. Við viljum að gleðin okkar við að gera kertin skili sér til þeirra sem njóta þeirra.Þetta va
Elska að fá mér bolla á morgana þegar ég er að ná áttum hvað þarf að gera yfir daginn. Reyndar er ég mikill kaffiþambari, byrjaði að drekka sykrað kaffi og kringlu hjá ömmu um 4. ára aldurinn :) Nú er sunnudagur og ég er komin út að vinna, var með sérpantanir og svo tæmast hillurnar jafnóðum og ég fylli á. Kannski ætti ég að draga úr ilmum og gera bara mikið af hverju, en þá er þetta eins og verksmiðja sem bara er... ég vil fá að leika lausum hala og skapa eitthvað sem ekki er í hverri hillu í ö
Við erum á fullu hér í kertagerðinni því um leið og við höfum smá myrkur á kvöldin þá er gott að hvíla hugann og kveikja kertaljós og njóta, það finnum við greinilega því sala í róandi ilmum hefur stóraukist miðað við í fyrra. Kannski er það að við erum að glíma við eitthvað sem við höfum ekki þekkt áður og þá er gott að geta horfið á braut í huganum og notið þess sem er í nánasta umhverfi. Við höfum úrval af slökunarilmum. Fyrir Reykvíkinga þá er Gjafir Jarðar með úrval af kertum frá okkur. Svo
Hér hefur verið nóg að gera bæði inni og úti :) þá á ég við hér úti í kertagerð.Við tókum að okkur smá aukaverkefni í kertagerðinni og hefur það gengið vel að selja þau kerti en hönnun á þeim á Vala Thoroddsen og heita þau No.1 Kerti. Það hefur verið gaman að fá að gera þau enda svo allt öðruvísi en Töfraljósa kertin mín. Vala er með Instagram síðu með þessum kertum.Gleym mér ei - Hjarta með konfetti, ilmkerti sem segir alltVið erum farin að huga að því sem verður í vor hjá okkur því ilmkerti að
Já hver dagur færir okkur eitthvað nýtt, það er okkar að sjá það og njóta. Á þessum skrítnu tímum þar sem við sjáum flesta ættingja okkar í gegnum fjarskiptabúnað, þá þurfum við að læra að meta allt þetta litla og fallega í nærumhverfi okkar. Fyrir mér er þetta ekki sérstaklega erfitt þar sem ég er haldin félagsfælni og á erfitt með að vera innan um marga en samt sakna ég þess að geta ekki faðmað barnabörnin. Já lífið er skrítið það sem einum finnst óþolandi finnst öðrum gott :) Þannig er lífið.
25 ára á næsta ári. Þetta er búið að vera endalaust ævintýri.Frá því að yfirtaka eldhúsið í það að flytja yfir í litla húsið mitt á baklóðinni.Þessi skemmtilega mynder mjög svo eftiminnileg öllum í fjölskyldunniþví kertin fóru í ísskápinn til kælingu og allur matur var smitaður af ilmum eða bara eingöngu kerti í honum.Á endanum var mér komið fyrir í bakhúsi sem átti að vera geymsla fyrir dekk og önnur verkfæri. En ísskápurinn fylgdi mér því hann var orðin partur af kertagerðinni og það var ákveð
um jólakertin okkar :) jólailmir í úrvali :)
Var að spá í að gera eins og IKEA í Svíþjóð og hækka kertin í það verð sem gæfi mynd af því hversu mikil vinna og mikil hugsun er á bakvið hvern ilm þennan eina dag til að gefa ykkur smá innsýn í hve mikill tími fer í framleiðslu á hverri einingu sem fer hér í gegn. Enn þess í stað fór ég í það að koma þessum elskum upp í hilllu Hér eru komnir kokteil ilmir sem eru geggjaðir, þessi kerti eru með vax blöndu sem er soya og kókosvax. Þau brenna mjög jafnt niður og ég er mjög ánægð með brennsluna. M2023-11-23T13:00:54.421Z Get Started With Wix Blog
Við erum eins og aðrir Íslendingar og ferðumst með hraði innan hús, við höfum alveg 3 herbergi til að skiptast á að vera í plús eldhúsið og þvottahúsið, já okkur leiðist ekki.Og auðvita varð að styrkja gjörgæsluna með að kaupa bol á húsbóndann, og minna okkur á að stundum er gott að hlýða þeim sem vilja okkur vel. Við erum alltaf að púsla eitthvað í kertagerðinni, og vonandi sést það eftir páskahelgina á vefnum.Við tókum okkur til og gerðum slatta af Ugly kertunum okkar í stærri krukkur en vi
eftir erfiða mánuði í veikindum. Ég hef lítið komið heim síðan í byrjun mars, en fór þá í smá aðgerð sem varð að einhverju mikilu meir en sem betur fer er ég komin heim og á bataleið, en ekki en komin með kraft til að vinna. Vefverslunin hefur verið opin allan tímann og því hefur eitthvað minnkað í hillunum. Hef sjálf lítið skoðað í hillurnar hjá mér en eitthvað er uppselt eða lítið til af, svo von mín að ég fari fljótlega að geta unnið. Gleðiefni eru alltaf mörg og stundum með tragískum undirtó
Við bætum við ilm í byrjun mars og það púsl að finna nafn á hann, fyrst ætluðum við að kalla hann Svört Kjólföt en fannst það ekki alveg eiga við þennan ilm sem er karlmannlegur, eins og eitt barnabarnið sagði við mig þetta er alveg eins ilmur og er af pabba og bróðir þegar þeir koma úr sturtu. Þar með var nafnið komið Íslenskir Karlmenn.Svo vorum við að byrja á Vanillulínunni og fyrsti ilmurin komin komin á síðuna. Allt er þegar þrennt er páskalegur og vorlegur litur á Ananas ilminum okkar.Þá æ
Hér eru fréttir af Töfraljósum Ilmkertagerð, framleiðsla á kertum í ýmsum stærðum. Við höfum sérhæft okkur í ilmkertum og erum með fjölda ilma til sölu. Allir ættu að finna kerti sem hæfir þeim. Eins eru ilmkerti yndisleg vinargjöf.
🇬🇷ID:K-10 Újépítésű 3. EMELETI lakás, tengerparti településen, privát medencével. Excluzív kivitelezés, kiváló közlekedéssel és közeli bevásárlóközponttal. Nyugodt, rendezett környezet. 4-5 fő számára kiválóan alkalmas. Konyhával felszerelt, kiadásra/lakhatásra berendezett 2 szobás apartman légkondí
það var farið að finna fyrir þurrki hér á Suðurlandinu, og ég ætla að nýta þennan dag í smá blogg og síðar að gera meira af þessum hér, en þetta eru skápailmirnir mínir. Hef verið með mismunandi útgáfur af þessum ilmpokum en þessir eru skemmtilegir því það er hægt að setja þá líka á herðatré það hef ég ekki gert áður að hafa hanka á þeim. Nú er sá tími komin í hönd að hópar eru að undirbúa alskonar uppákomur, og eins og alltaf er hægt að fá að koma til okkar og skoða kertin jafnvel að fylgjast m
Hi! You have reached this page because you have been blocked. The reason is that our security system thinks abnormal activity occurred. This can, for example, be due to too many login attempts or other …
Við höldum okkur við að framleiða sumarkertin en von bráðar förum við að gera klárt að fara í jólailmveisluna.
Ez a cikk abban segít, hogy magabiztosan foghass hozzá a bútorfestéshez, majd sikerrel vihesd azt végig. – Kattints, és olvasd végig a tippeket!
🇬🇷ID:GR-1 30-44 m2 Újépítésű lakás, tengerparti településen, privát medencével. Excluzív kivitelezés, kiváló közlekedéssel és közeli bevásárlóközponttal. Nyugodt, rendezett környezet. 4-5 fő számára kiválóan alkalmas. Konyhával felszerelt, kiadásra/lakhatásra berendezett 2 szobás apartman légkondíci
þetta á víst við okkur flest þessa daganna, það er eins og við séum að lifa í vísindaskáldsögu svo óraunverulegt en svo satt. En það styttir upp og lífið á eftir að verða kunnuglegt á ný og við getum brosað og faðmast. Kannski verður það aldrei eins því þetta mun marka yngri kynslóðina til langframa. En vonandi verður þetta saga sem verður eins og ævintýri í augum barnabarna þeirra. Við framleiðum allskonar ilmkerti og mikið af sérpöntuðum í lita þemum eða ilmi. Á þessum tíma fáum við mikið af