A crossword to practise the names of animals. Students have to match the words to the correct pictures and complete the crossword, then find a secret message. G…
"numbers" - PLANERIUM
Picture crossword useful for reinforcing vocabulary and spelling.
Þetta er bara ansi sniðug uppskrift. Þessi kaka inniheldur ekki súkkulaði eða kakó, ekkert smjör, ekkert hveiti, engan sykur, engan flórsykur og engan rjóma! Aðaluppistaðan er hnetur og carob. Kremið er svo búið til úr tahini (sesammauki) carobi og hlynsírópi. Kakan hentar því mjög vel fyrir þá sem eru jurtaætur (enska: vegan) og fyrir þá sem vilja ekki hveiti (t.d. með glúteinóþol) eða sykur. Kakan er reyndar alls ekki hitaeiningasnauð, þvert á móti, hún er þvílík kaloríubomba en á móti kemur að hún er ansi vítamínrík, próteinrík, kalkrík og svo er mikið af hollri fitu í öllum hnetunum og möndlunum. Gott er að bera kökuna fram með cashewhneturjóma (eða venjulegum rjóma fyrir þá sem það vilja). Gott er að hafa í huga að ekki þarf að baka þessa köku og hún tekur ekki langan tíma í undirbúning þar sem hráefnið fer mest allt í matvinnsluvél! Þetta er sennilega „frægasta uppskriftin” á CafeSigrun því hún hefur fengið umfjöllun a.m.k. 4 sinnum í blöðunum! Kakan sló einnig í gegn á meðal útlendinga í hestaferð um hálendið 2007. Þeir trúðu því ekki að hægt væri að fá svona fína köku án þess að vera með neitt nema sleif og skál (ég var búin að mala hneturnar)! Athugið að nota má kakó í staðinn fyrir carob. Nauðsynlegt er að nota matvinnsluvél til að útbúa þessa uppskrift.