Í kvöld eldaði ég nýjan kjúklingarétt sem varð á svipstundu einn af uppáhaldsréttum fjölskyldunnar! Börnin linntu ekki látum fyrr en ég lofaði að hafa þennan rétt allavega vikulega. Okkur Elfari fa…
Þetta er virkilega einfalt að útbúa og skemmtilegt fyrir krakkana til að prófa sig áfram með. Eina sem getur klikkað er ef maður fylgist ekki nógu vel með og osturinn brennur.
Það ætti enginn að fara í gegnum vikuna án þess að fá sér unaðslega góðan brauðrétt. Þennan verður þú að prófa.
September er tilvalinn tími til að núllstilla mataræðið aðeins eftir jólahátíðina og því tilvalið að elda létta og bragðgóða grænmetisrétti líkt og þetta bragðgóða grænmetis lasagna.
Þessi uppskrift dugar fyrir fjóra og er fullkomin fyrir helgar brunchinn. Hér er svo um að gera að prófa sig áfram. Til dæmis er gott að bæta við nokkrum smjörsteiktum sveppum í sneiðum, aspas eða öðru grænmeti.
Þessi frábæri brauðréttur kemur úr smiðju Lionskvenna í Borgarnesi en hann er að sögn Alberts Eiríkssonar einstaklega fljótlegur og bragðgóður - eiginlega bara algjört sælgæti sem þið verðið að prófa.
Ég hef verið að prófa allskonar uppskriftir af öðru lasagna en því sem ég geri oftast nær, þessu hér. Flestar uppskriftirnar hafa verið góðar, en hingað til hafa engar slegið mínu lasagna við. Ég h…
Það er vika liðin síðan ég setti inn uppskrift hér á bloggið en það er ekki þar með sagt að ég hafi verið í fríi frá eldhúsinu, síður en svo. Í dag er ég búin að vera að prófa mig áfram með ýmsa ré…
Texmex-heitur réttur í ofni. Heitir réttir í ofni standa alltaf fyrir sínu og hafa glatt þjóðina í áratugi. Hver hefur ekki upplifað í veislum að heitu réttirnir virðast gufa upp eins og dögg fyrir sólu. Það er afar auðvelt að fá matarást á Halldóru systur minni, það þekkja þeir fjölmörgu sem hafa borðað hjá henni í gegnum tíðina. Hér galdrar hún fram heitan rétt með Texmex osti, rétt sem tekur stutta stund að undirbúa og aðeins þarf að baka í korter. Hentugt fyrir fólk sem er á hraðferð. Einnig er uppskrift að súkkulaðieggjaköku.
Bakaðar vefjur er svo ótrúlega góðaaar! Þær eru djúsí, bragðmiklar og svo rosalega ljúffengar. Þessi réttur kallast upprunalega enchiladas en hann saman stendur af bragðmiklu hakki, góðum osti og vefjum, rúllað upp og bakað í nóg af sósu. Ég gerði ferskt salsa með vefjunum sem gerði alveg ótrúlega mikið fyrir réttinn. Það er svo einfalt […]
Sonur minn, Vilhjálmur Bjarki, varð tveggja ára í dag (þann 4. ágúst). Í fyrra stóð þannig á að við héldum ekki afmælisveislu þannig að í ár var í fyrsta afmælisveislan. Hann vissi vart hvaðan á sig stóð veðrið. Hann var afar undrandi á öllum kossunum, söngnum en virtist þó njóta athyglinnar sem hann fékk. Eitthvað líkur föður sínum hvað það snertir. Við buðum allri stórfjölskyldunni, sem við höfum oft gert áður, nema hvað núna mættu allir. Yfirleitt eru svona 30-40% afföll vegna hins og þessa en nú virtist hver einasta hræða vera í bænum og ekki nóg með það búinn að geta börn. Það var varla þverfótandi fyrir litlum krílum. Þetta var alveg frábært. Sem betur fer er ég stórtækur í eldhúsinu og það breytti litlu þótt allir kæmu, allir fengu að borða og ég held bara að allir hafi gengið út með mettan maga. Eins og ég sagði þá höfum við hjónin oft haldið fjölskylduboð og það er alltaf gaman að hitta allt slegtið. Ég er meira segja kominn með svona fasta liði eins og venjulega þegar að svona stórum veislum kemur. Nokkrar vel valdar kökur, súkkulaðiköku drengur að hætti móður minnar, saltmöndlukaka sem á rætur að rekja í fjölskyldu Snædísar. Ég geri svo yfirleitt alltaf heita rétti sem hafa verið í miklu uppáhaldi. Svo hef ég gjarna verið með heimabökuð brauð, álegg og osta og núna brá ég á það ráð að vera með súpu...og þó ég segi sjálfur frá þá heppnaðist veislan bara ansi vel. Heitir réttir, súpa og heit brauð á afmæli sonarins. Í þetta sinn gerði ég fjóra heita rétti, nokkuð líkir hver öðrum en aðeins blæbrigðamunur á milli. Eldfast mót er smurt með heimagerðri hvítlauksolíu, svo eru brauðsneiðar (skorpan skorinn frá) lagðar þétt í botninn. Núna gerði ég smá nýjung og smurði smurosti, sveppaosti í tvö mót og svo beikonosti í hin tvö mótin. Því næst dreifði ég skinku í þrjú af fjórum mótunum (eitt var designerað grænmetis - svona til að vera pólitískt réttsýnn). Svo skar ég sveppi yfir skinkuréttina, rauðlauk, aspas í dós fór í tvö mót, salvía fór í helming rétta og svo steinselja í hina tvo. Í grænmetisréttinn setti ég kúrbít, lauk, spergilkál, rauða papriku, púrrulauk og svo salvíu. Fyrir hvern heitan rétt setti ég svo 5-6 stór egg, 300 ml af rjóma, smávegis af safanum af aspasnum. Þetta var svo hrært vel saman og hellt yfir réttinn þannig að það náði yfir brauðsneiðarnar og aðeins upp á grænmetið (eggja-rjómablandan þenst svo vel út). Rifnum osti er svo sáldrað yfir og saltað og piprað. Bakað í ofni við sirka 200 gráður í 25-30 mínútur þar til osturinn er fallega gullinn. Súpan var einföld en ansi tímafrek. Ég byrjaði að gera súpuna kvöldið áður. Þrjár stórar gulrætur, tveir meðalstórir laukar, þrír garlic noble hvítlaukar og þrjár stórar sellerísstangir voru skornir fremur smátt niður. 4 msk af jómfrúarolíu var hituð í stórum súpupotti og grænmetið svo steikt og látið "svitna" vel í olíunni. Svo er fjórum dósum af niðursoðnum tómötum, 2 dósum af tómatapaste sett útí og hrært saman við. Hráefnið er svo maukað með töfrasprota og síðan er vatni bætt útí súpuna. Þegar þarna er komið er súpan um 7 L. Súpan er svo soðin upp og leyft að malla í nokkra klukkutíma með lokið á. Súpan er smökkuð til, saltað, piprað, krafti bætt saman við. Borið fram með heimagerðu brauði. Ég gerði þrennskonar brauð. Hvítlauks og rósmarínbrauð, gróft heslihnetu- og fjölkornabollubrauð og svo ólífubrauð. Fólk er oft að spyrja mig hvernig ég geri þessi góðu brauð. Það er í raun hið einfaldasta mál. Svona hollt og bollt er þetta alltaf það sama. Hlutföll er í raun það eina sem skiptir máli þegar maður er að gera brauð, hvað þú setur svo í brauðið er svo annað mál. Venjulegt brauð sem ég geri er um 500-600 gr af hveiti, 30 gr af salti, 3 msk af jómfrúarolíu. 3 tsk af geri er vakið í 300 ml af ylvolgu vatni með 3 msk af sykri (eða hunangi/sírópi). Gerið er svo vakið í sykurvatninu og blandað rólega við hveitið þar til að það verður að fallegum mjúkum klump. Hnoðað um stund. Til að gera hvítlauks- og rósmarín brauð er hvítabrauðið formað þannig að það verði til brunnur í brauðinu og svo er hvítlauksolíu hellt í brunninn. Svo er rósmarín sáldrað yfir. Til að gera ólífubrauð er alveg eins brauðklump og áður hefur verið lýst hnoðað saman við 30 spænskar ólívur, vafið upp og bakað. Til að gera gróft bollubrauð er helmingum af hvíta hveitinu skipt út fyrir heilhveiti, smávegis af haframjöli bætt saman við og kannski smá sírópi. Þegar deigið hefur hefast er 100 gr af heslihnetum bætt útí ásamt handfylli af fjölkornafræjablöndu. Deigið er svo klipið niður og hnoðað í litlar bollur sem er svo raðað saman í þyrpingu. Bakað í um 40 mínútur við 180 gráðu hita (á við öll brauðin). Borið fram með ostum og skinku, pylsum og salami og svoleiðis.
Laxinn er eldaður á pönnu upp úr smjörsteiktum lauk, hvítlauk, engiferi og chillí, toppaður með örlitlu hunang
Ég er ekki með neinn móral yfir að hafa boðið upp á sítrónukökuna á mánudaginn en ef einhverjum hefur blöskrað óhollustan þá bæti ég upp fyrir það núna með þessum súperhollu en jafnframt stórkostl…
Þessar kjúklinga quesadilla eru svo ótrúlega góðar! Ég hef oft keypt mér quesadilla á veitingastöðum en ég verð að viðurkenna að mér finnst þessi sú besta sem ég hef prófað. Alveg klárlega eitthvað sem ég mun elda aftur og aftur á mínu heimili. Það er líka svo einfalt að smella þessu saman, svona einn af […]
Grænmetislasagna. Það er hressilegt að skoða uppskriftir sem kannski eru ekki komnar til ára sinna en þó - þessi glaðlegi saumaklúbbur varð til er þær fluttu flestar austur aftur í kringum aldamótin að loknu námi og settust að í Garðaholtinu á Fáskrúðsfirði. Í góðlátlegu gríni segjast þær fljótlega hafa uppgötvað að þær höfðu ekki fengið boð um að vera í neinum saumaklúbbum svo að þær tóku saman ráð sín og stofnuðu sinn eigin. Fyrst var hist hálfs mánaðarlega en núna koma þær saman einu sinni í mánuði.
Buffalo blómkáls “vængir” sem eru alveg ótrúlega góðir og eiga alveg örugglega eftir að koma þér á óvart! Blómkáls “vængirnir” eru góðir sem forréttur eða með öðrum réttum. Buffalo blómkáls “vængir” 100 g hveiti 1 tsk papriku krydd ½ tsk cayenne pipar 2 tsk hvítlaukskrydd 1 tsk salt ½ tsk pipar 2 dl mjólk frá […]
Grískur kjúklingaréttur. Mikið er alltaf áhugavert að prófa rétti sem eru „eyrnamerktir“ öðrum löndum...
Þessi uppskrift er algjör klassík, við fjölskyldan höfum gert þessa í fjölda mörg ár, hún slær alltaf í gegn, bragðgott og einfalt.
Þessi uppskrift gefur ykkur stökka húð á kjúklingavængina eins og þeir væru djúpsteiktir. Lyftiduftið í uppskriftinni er einmitt það sem gefur vængjnum þessa stökku áferð og svo alls ekki gleyma því að setja það í kryddblönduna. Frank’s RedHot Sauce er löngu orðin klassís og er algjört nauðsyn til að gera góða og sterka vængi. Það […]
Mangó Chutney kjúklingaréttur var eitt það fyrsta sem ég lærði að elda. Með tímanum hef ég þróað hann og náð að gera hann að mínum eigin. Þessi kjúklingaréttur er æðislega góður og slær alltaf í gegn. Mér finnst alltaf betra að nota brún eða villt hrísgrjón. Þau eru örlítið stífari undir tönn sem gerir réttinn mikið […]
Fyrir helgi prófaði ég uppskrift af kjúklingi í ostrusósu sem vakti heldur betur lukku hér heima. Betra en á veitingastöðum segjum við sem vorum í mat (allir nema Malín). Klárle…
Jæja. Ég er voða spennt að setja þessa uppskrift inn og veit að það eru nokkrir að bíða eftir henni. Yngsti fjölskyldumeðlimurinn á heimilinu hefur búið við almennt tannleysi, lausar tennur og auma…
Þegar við Gunnar vorum í Stokkhólmi í sumar rifum við okkur upp á hverjum morgni til að ná morgunverðinum á hótelinu. Það þarf mikið til að hann rífi sig upp á morgnana, hvað þá í miðju sumarfríi, …
Upp á síðkastið hefur bloggið lent aftarlega á forgangslistanum þar sem að líður senn að því að við fáum afhent húsið sem við keyptum síðastliðið sumar. Við erum að skipuleggja miklar breytingar á …
Annar sunnudagur í aðventu … tíminn þýtur svo sannarlega áfram. Í dag fórum við í árlegt aðventukaffi til Ingu frænku í tilefni afmælis hennar. Að vanda bauð hún upp á gómsætar veitingar, upp…
Kjúklinga enchiladas Frábær réttur sem er ótrúlega bragðmikill, löðrandi í osti og gúmmulaði. Þú átt alveg örugglega eftir að elska þennan rétt. Það er best að nota foreldaðar kjúklingabringur og smella öllu saman á létt pönnu, þá tekur þetta enga stund. Það er auðvelt að búa til sína enchilada sósu og algjör óþarfi að fara […]
Ljúffengur lax í hvítlauks rjómasósu sem gleður jafnt bragðlauka sem og augun! Einfaldur og fljótlegur réttur sem bragð er af.
Mangó chutney með hvítlauk og salt&pipar er smurt yfir laxinn áður en hann er settur inn í ofn með kartöflubitum, roslega góður réttur!
Kjúklingasamlokur standa alltaf fyrir sínu og við leyfum okkur að fullyrða að þessi sé með þeim betri. Höfundur hennar er engin önnur en Berglind Hreiðars á Gotteri.is
Dásamlegur heitur brauðréttur sem upplagt sem fljótlegt er að útbúa.
Ferskt salat með ferskjum og basil dressingu er létt og afskaplega einfalt salat sem hentar vel hvenær sem er, hvort sem aðalréttur eða meðlæti.
Ostafylltar kjúklingabringur í rjómalegi bornar fram með kartöflu smælki og fersku salati. Ekta haustmatur af einföldustu og bestu sort. Bæði kjúklingurinn og kartöflurnar taka u.þ.b. 40 mín í ofninum, kartöflurnar þó örlítið styttri tíma mögulega, þannig það er mjög sniðugt að smella kjúklingnum fyrst inn í ofn og kartöflunum svo í beinu framhaldi. Ostafylltar kjúklingabringur […]
Á haustin þykir mér fátt betra en að elda úr íslensku ný uppteknu grænmeti. Verslanir eru nú fullar af þessu góðgæti og það ætti enginn að láta fram hjá sér fara að njóta þess að útbúa hollan og gó…
Ég átti afmæli á mánudaginn. Ég veit ég hef sagt það áður en ég segi það bara aftur, ég elska að halda upp á afmælið mitt. Veitingar hafa mikið með það að gera. Fullt hægt að tilraunast og það er a…
Einfalt, virkilega bragðgott og djúsí kjúklingasalat sem svíkur engann. Romaine salatið er safaríkt, kjúklingurinn vel kryddaður, sósan bragðgóð og djúsí.
Brauðréttir eru mikil og merkileg trúarbrögð. Engin veisla er fullkomin án þeirra og helst má engu breyta ellegar getur veislan verið argasta klúður.
Afskaplega bragðgott klassíkst karöflugratín sem inniheldur nóg af osti og gúmmulaði
Ef þú elskar ferskleika þá þarft þú að prófa þetta túnfiskasalat. Það er ótrúlega djúsí og gott en á sama tíma létt, ferskt og ljúffengt.
Þetta brakandi ferska salsa er búið til úr fersku íslensku grænmeti og engu öðru. Það er nánast ótrúlegt hvernig hægt er að taka nokkur grænmeti, skera það niður og blanda saman og búa til svona ótrúlega góða salsa sósu. Það er enginn sykur, olía eða neitt annað sem er bætt út í þetta salsa, bara holla og […]
Hér höfum við alveg trufflað góða kartöflubáta í æðislegri fetaostasósu. Kartöflubátarnir henta vel sem meðlæti, hvort sem það er hversdags eða fínt.