Sjónvarpskokkurinn og matarbloggarinn Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir snýr aftur á skjáinn á Söð 2 innan skamms með girnilegar og freistandi uppskriftir sem einfalt er að leika eftir. Hérna gefur hún lesendum Matarvísis uppskrift af dásamlegri breskri döðluköku.
„Þegar ég hugsa um fullkomnun í bakstri hefur hugurinn oft leitað til Melkorku muffins sem færðu mig og aðra sem þær smökkuðu til muffinshimna ...
Það er vandasamt að grilla heilan kjúkling þannig að hann eldist jafnt. Ein besta leiðin er grilla fuglinn á teini (rotisserie) en það krefst sérstaks aukabúnaðar á grillið. Önnur aðferð er bjórdolluaðferðin svokallaða. Ein þægilegasta aðferðin er hins vegar að skera kjúklinginn í „butterfly“ og grilla hann þannig. „Butterfly“ aðferðin er yfirleitt notuð fyrir stærri,Lesa nánar
Á meðan langri búsetu okkar fjölskyldunar stóð erlendis, kveiknaði oft nostalgísk löngun í íslenskan mat. Ég steikti kleinur, bakaði rúllutertur, bjó til kjötsúpu, fiskibollur og aðra íslenska matr…
Það er mikilvægt að hafa góða sósu með nautalundinni á borð við þessa kröftugu púrtvinssósu. Fleiri góðar sósur með kjöti má svo finna hér. 2 skalottulaukar, fínsaxaðir 3 dl púrtvín 1 dl balsamikedik 1 dl nautakraftur 2 msk tómatakraftur 1-2 timjanstönglar smjör salt og pipar Hitið smjör í potti og mýkið saxaða skalottulaukinn á miðlungshita.Lesa nánar
Það er búið að vera svo kalt hjá okkur að ég er næstum því komin með heimþrá. Tólf stiga frost, vindur og raki í lofti gera það að verkum að manni líður eins og það sé verið að naga í kinnarnar á m…
Þessi uppskrit er fyrir tvær 23 sm bökur en það er auðvitað hæglega hægt að helminga uppskriftina og láta eina duga. Ólífumauk eða tapenade má kaupa tilbúið en best er auðvitað að gera það sjálfur samkvæmt þessum leiðbeiningum hér. smjördeig 120 g ólífumauk (tapenade) 200 g ætiþistlar úr dós (t.d. Ítalía eða Sacla) 150 fetaosturLesa nánar
Þetta bananabrauð hefur lengi verið í uppáhaldi og óhætt að segja að það er uppáhalds brauð strákanna. Þeir biðja mig oft um að baka það og ef ég á banana sem hafa séð betri daga þá nýti ég þá allt…
Ég man ekki alveg hver kveikjan var að kökupinnargerð, sennilega bara það að mig langaði að gera eitthvað annað en að baka "köku". Uppskriftin er einföld: 1 Betty Crocker Djöflaköku- eða súkkulaðikökumix 400 g súkklaðikrem frá Betty Crocker Hvítir súkkulaðidropar frá Nóa Síríus Aðferð Bakið Betty Crocker blönduna samkvæmt leiðbeiningum. Þegar kakan er orðin köld er hún tekin í sundur og mulin niður í skál. Kreminu er síðan bætt saman við með gaffli. Besta útkoman verður þegar blandan er kramin í höndunum, nauðsynlegt að vera í hönskum. Blandan á að vera þannig að hún festist ekki við hendurnar og ekki of þurr. Ef farið er nákvæmlega eftir uppskriftinni ætti hún að vera fullkomin. 1. Mótið kúlur, setjið á smjörpappír og kælið í kæli í ca. 15-30 mínútur eða í frysti í 5 mínútur. 2. Kúlurnar eru teknar út, endanum á kökupinna dýft í súkkulaði og stungið í miðjuna á kúlunni. Kælið aftur þar til súkkulaðið á pinnanum er storknað. 3. Súkkulaði er brætt við meðalhita, litað með súkkulaðilitum og síðan notað til að hjúpa pinnana. 4. Skreytið að vild.
Þessi kjötbolluuppskrift er byggð á uppskrift, svolítiið stíl og staðfærð, frá lítilli sælkerabúð í Little Italy í New York, Di Palo Fine Foods, sem að sjálfsögðu selur heimatilbúnar kjötbollur.
Hér er á ferðinni vinningsréttur úr nýrri matreiðslubók Berglindar Guðmundsdóttur, GulurRauðurGrænn&salt
Þetta er ferlega fljótlegt að hriiiiikalega auðvelt. Innkaupalistinn: Bakki af kjúklingabringum Poki af spínati Krukka af fetaosti sætar kartöflur (ég er með 1 og ½ frekar stórar) BBQ sósa…
Nú ákvað ég að prófa sjálf frá grunni, ég bakaði grænu kökuna en að sjálfsögðu með rauðum matarlit og útkoman var bleik kaka. Ég lét hana kólna og reif hana svo niður í skál og blandaði vanillu kremi útí. Mótaði kúlur og skellti í frysti í ca 10-15 mín. Bræddi dökkan súkkulaðihjúp, keypti pinnana í Allt í köku og skrautið fékk ég í Partýbúðinni. Hér er uppskriftin: 250 gr smjörlíki 250 gr hveiti 250 gr sykur 2 egg 1 tsk lyftiduft 1 tsk möndludropar 1 1/2 dl sjóðandi vatn rauður matarlitur Hrærið saman smjörlíki,sykur og svo eggjum. Bætið við möndudropum og matarlit, svo helming af hveiti og helming af vatni og í lokin blandið saman rest af hveiti og lyftiduft og bæta því við ásamt restinni af vatninu. Bakið í 160° í ca 50 mín.
Nú eru loksins allir í fjölskyldunni komnir heim eftir ævintýri sumarsins. Alexander var í löngu og skemmtilegu ferðalagi um Japan en Ósk var á Krít og í Stokkhólmi. Báðum systkinunum langaði í eit…
Ég þarf að taka mig á í skipulaginu. Ég er með myndir og minningar af góðum réttum og kökum sem ég hef útbúið nýlega en ég finn ekki uppskriftirnar! Til dæmis fann ég eina góða kjúklingauppskrift á…
Borðstofuborðið hefur verið undirlagt af jólapappír, skrautmiðum og borðum um helgina og hefur einna helst minnt á verkstæði jólasveinsins. Á bak við aðventustjakann má sjá glitta í hluta af jólagj…
Explore our recipe collection with ideas for any occasion. We share simple, easy-to-follow recipes, tried-and-true classics, cocktails, trendy dishes, and more.
Þetta er fullkominn morgunverður á sunnudagsmorgni - steikarsamloka. Þarna er hægt að nýta afganga helgarinnar á ljúffengan hátt. Svo hressir þetta líka við sálartetrið í þeim svo vöktu lengst fram eftir nóttina áður. Ég hef alla tíð verið mikill unnandi þess að fá mér góðan morgunverð um helgar; egg og beikon, ommilettu, steikta sveppi, ekta ensku fry-up, ostabrauð eða brauð með hrærðum eggjum! Endilega smellið á lagið sem fylgir færslunni til að koma ykkur í rétta stemmingu! Ætli þessi helgarmorgunverðarhefð hafi ekki byrjað hjá föður mínum, sem á laugardagsmorgnum bauð okkur bræðrunum upp á "brauð ríka mannsins". Og það var ekki lítið sem okkur fannst þetta merkileg máltið. Þetta var samt bara brauðsneið smurt með mayonesi eða tómatsósu, næst niðurskorin pylsa (oft afgangur frá kvöldinu áður) - skorin stundum á breiddina - stundum á lengdina - stundum steikt - stundum soðin, næst steiktur laukur og svo remúlaði eða sinnep. Þetta er auðvitað bara pylsa með öllu - en þegar pabbi bjó þetta til á laugardagsmorgnum - var þetta brauð ríka mannsins! Af og til endurtek ég leikinn en verð þó að játa að það er langt síðan síðast - ætli ég sé ekki farinn að gera mínar eigin útgáfur eins og þessar tvær; Opnar samlokur par exellans; steikarsamloka og kjúklingaloka Hráefnalisti: Gott hvítt brauð 1-2 msk hvítlauksolía 1 msk dijon sinnep Handfylli af sveppum og lauk 200 gr nautakjöt Ostur Jómfrúarolía Klettasalat 2 msk mayonnaise Afgangur af kjúkling Byrjum á steikarsamlokunni sem var á boðstólum fyrir viku. Ég hafði keypt þetta fyrirtaks franskbrauð útí búð sem ég skar í tvær þykkar sneiðar, penslaði með hvítlauksolíu og grillaði á pönnu. Smurði síðan brauðsneiðina með djionsinnepi. Steikti sveppi og lauk í smáræði af smjöri - saltaði og pipraði. Notaði þessa nýju fyrirtaks pönnu sem ég er ákaflega hrifinn af; Zwilling Spirit, sem er með keramíkhúð í stað teflon. Svo steikti ég um 200 gr af nautakjöti í 2 msk af olíu, saltaði og pipraði. Blandaði síðan sveppunum og lauknum saman við. Lagði kjötið ofan á brauðið og lagði síðan tvær ostsneiðar yfir það. Sett undir grillið í 3-4 mínútur - rétt til að brúna ostinn! Girnilegt ekki satt? Þá er bara að vinda sér yfir í næstu samloku. Ég hafði eldað kjúklinginn hennar mömmu - sjá hérna, og auðvitað var smá afgangur - og hann verður að nýta! Fyrst ristaði ég brauðsneiðar. Smurði með mayonesi. Þá var sett klettasalat og svo kjúklingurinn sem ég hafði skorið niður - 150 gr sirka. Ég hrærði síðan 2 msk af djionsinnepi og mayonaise (50-50) saman við kjúklinginn. Skipt niður á milli tveggja brauðsneiða. Því næst setti ég tvær þykkar ostsneiðar yfir og undir grillið. Alger success! Bon appetit!
Í tilefni þess að þessi færsla er sú hundraðasta hér á blogginu ákvað ég að líta yfir farinn veg og benda á þrjár uppskriftir sem eru í uppáhaldi hjá mér. Súkkulaði- og bananabakan kemur fyrst upp …
Þessar bökuðu parmesankartöflur eru mjög gott meðlæti með öllu rauðu kjöti, t.d. nautasteik, lambi og hreindýri. stórar bökunarkartöflur 1 stór bökunarkartafla 1/2 dós sýrður rjómi (18%) 1 dl rjómi/matreiðslurjómi 1 vænn skalottulaukur, fínsaxaður rifinn parmesanostur salt og pipar Skerið kartöflurnar í þunnar sneiðar. Hitið vatn í potti ásamt smá salti. Þegar suðan kemur upp eruLesa nánar
Hér gerum við sannkallaða hversdags-lúxusmáltíð úr grísakótilettum með því að sækja innblástur í italska eldhúsið. 4 grísakótilettur 1 msk salvía 1 lúka fersk steinselja, söxuð 2,5 dl matreiðslurjómi 1,5 dl hvítvín 50 g rifinn Parmesanostur 1 tsk chiliflögur smjör ólífuolía salt og pipar Kryddið grísakótiletturnar með salti, pipar, chliflögum og salvíu. Hitið smjör og olíuLesa nánar
Við erum öll í bollunum þessa dagana. Hingað kom gott fólk í ljómandi notalegt bollu afmæliskaffi í dag og gæddi sér á vatnsdeigsbollum gærdagsins, sem hafði auðvitað verið umbreytt í rjómabollur. …
Mér líður eins og það hafi liðið heil helgi síðan ég var í vinnunni í gær. Ég held að það sé vegna þess að í dag var Elfar aldrei þessu vant í fríi líka og svo gerðum við líka svo margt skemmtilegt…
Marsipan manía – Það mætti sennilega greina mig með eitthvað svoleiðis. Ég e.l.s.k.a. marsipan og allt sem því viðkemur og hef gert frá því að ég man eftir mér. Hér inni eru nokkrar uppskrift…
Við enduðum helgina á einföldum og klassískum rétti, ofnsteiktum kjúklingi. Við fáum reglulega löngun í heilsteiktan kjúkling og viljum þá hafa kartöflumús og þessa dásamlega góðu sósu með. Sósan …
Þetta eru amerískir kanilsnúðar eins og þeir gerast bestir. Ekta Cinnabon. Galdurinn er að gefa deiginu góðan tíma til að lyfta sér, nota púðursykur í fyllinguna og rjómaost í kremið.
Við áttum góða helgi með frábærri fermingarveislu, ljúfum kvöldverði með góðum vinum á veitingastaðnum Mar og sundferð. Svo slökuðum við bara almennt vel á í dásamlega veðrinu sem hér hefur verið u…
Það er eitthvað við taílenskan mat sem erfitt er að standast. Vissir þú að það er ekki flókið að búa til taílenska rétti frá grunni?
Í síðustu viku kom út ein flottasta matreiðslubók sem sést hefur á landinu og hún er líka mjög kærkomin. Bókin heitir Heilsuréttir Fjölskyldunnar og er eftir Berglindi Sigmarsdóttur en hún…
Mikið var nú gott að fá svona milt og fallegt veður um helgina, vonandi er þetta vísbending um það sem koma skal nú síðhausts. Í gærkvöldi kom stórfjölskyldan saman með ömmu og afa til þess að fagn…
Núna þegar veturinn nálgast með hraði, það er farið að kólna í veðri og meira að segja þarf að draga rúðusköfuna fram suma morgna þykir mér enn mikilvægara að vera skipulögð í matarinnkaupum. Mér h…
Eitt kílógramm af sneiddum lauk getur virkað of mikið en rúmmál lauksins mun minnka til muna. Það er mikilvægt að flýta sér hægt og elda laukinn við vægan hita í langan tíma því þannig karamellast …
Ég er býsna spennt yfir þeirri matargerð sem bíður mín næstu vikurnar. Ég pantaði nefnilega 1/4 af nautaskrokk beint frá býli. Ég hef gert það áður og það er svo mikill munur á gæðum kjötsins, sérs…
Mér sýndist tillagan að vikumatseðlinum sem ég setti inn síðasta sunnudag falla í góðan jarðveg og endurtek því leikinn. Nú geng ég þó skrefinu lengra og sting líka upp á köku til að eiga með helga…
Þessi réttur er sígíldur í ítölskum eldhúsum. Hann er vitskuld þekktur um alla Ítalíu en í breytilegri mynd eftir landsvæðum. Eftir því sem ég kemst næst var Marcella Hazan efins um hvort að hún ætti að hafa þessa uppskrift í bíblíu sinni um ítalska matargerð - því allir kynnu þetta. En auðvitað endaði hún í bókinni. Ég hef nokkrum sinnum rekist á þessa uppskrift í matreiðslubókum mínum en aldrei verið spenntur fyrir því að prófa. Svona getur maður verið vitlaus! Það byggði auðtvitað á fáfræði - ég hafði einhvern tíma bitið það í mig að mér þætti eggaldin ekki gott grænmeti - en núna veit ég að það var bara vegna þess að ég kunni ekki að matreiða það! Það má því segja að eggaldin (melanzane) sé ný uppgötvun í eldhúsi mínu. Ég bloggaði í lok ágúst um penne með eggaldin og tómatsósu sem var alveg stórgott. Réttinn höfum við endurtekið síðan þá með smá breytingum. Ferskt eggaldin finnst mér ennþá ekki gott á bragðið - það er heldur biturt - en við að matreiða það á ákveðinn hátt er hægt að lokka fram dásamlegt, djúpt, arómatískt og örlítið heitt bragð af þessum fallega ávexti. Það þarf að salta það áður - láta það svitna, þannig fer hluti beyskjunnar. Svo elskar eggaldin að fara í olíubað - upp úr heitri olíu. Það sýgur auðvitað heilmikið í sig og því er líka hægt að pensla það með olíu og baka inn í ofni - sennilega hollara. Þannig er hægt að ná fram þessu eftirsóknarverða bragði! Meiriháttar Melanzane alla parmigiana með hvítlauksbrauði og rauðvínsglasi Hráefnalisti 3-4 eggaldin Salt og pipar 1 laukur 2-3 hvítlauksrif 2 dósir niðursoðnir tómatar 2 msk tómatpuré 2-3 msk steinselja 150 gr mozzarella 5-6 lauf ferskur basil Þetta er auðveldur réttur sem byggir allt sitt á því að verið sé að nota gott hráefni. Við reyndum að gera þetta eins einfalt og mögulegt er. Þó að rétturinn heiti - alla parmigiana - notuðum við líka mozzarella. Það er auðvitað ekki bara vegna bragðisins heldur líka til að spara peninga - mozzarella er auðvitað miklu ódýrari ostur heldur en parmaostur. Fyrst er að byrja á því að undirbúa eggaldinið - 3-4 stykki eru skorin niður í sneiðar. Sneiðarnar eru saltaðar og svo lagðar á pappír til að soga í sig vökvann. Maður sér strax hvernig eggaldinið byrjar að svitna. Að þessu sinni ákváðum við að elda eggaldinið í ofni. Það var penslað með jómfrúarolíu og síðan bakað í 200 gráðu forhituðum ofni þangað það byrjaði að taka lit og verða gullið. Þá er það tekið úr ofninum og lagt til hliðar. Næst er að gera einfalda tómatsósu. Einn laukur, 2-3 hvítlauksrif eru skorin smátt niður og steikt í nokkrar mínútur í heitri olíu þangað til laukurinn er fallega gljáandi. Þá er tveimur dósum af góðum niðursoðnum ítölskum tómötum bætt saman við, saltað, piprað eftir smekk. Tveimur matskeiðum af tómatpuré er bætt saman við ásamt 2-3 msk af niðurskorinni steinselju. Stundum þarf að bæta við smá sykri/tómatsósu - séu tómatarnir örlítið súrir. Suðunni er leyft að koma upp rólega. Því næst eru tvær mozzarellakúlur skornar niður eins þunnt og unnt er. Svo raspar maður niður eins mikið af parmaosti eins og fjárhagur leyfir - kannski 100-150 gröm. Þá er lítið annað að gera en að raða réttinum saman í eldfast mót. Fyrst er að setja tómatsósu í botninn, svo eggaldinsneiðar, þá mozzarellaost/parmaost, síðan raðar maður nokkrum laufum af ferskri basiliku. Þá er ekkert annað að gera en að endurtaka leikinn þangað til að allt hráefnið er uppurið. Í lokin settum við ostblandaða brauðmylsnu yfir. Handfylli af brauðmylsnu og handfylli af parmaosti er sett í skál og vætt með 2-3 matskeiðum af góðri jómfrúarolíu. Mylsnunni er síðan stráð yfir réttinn sem er síðan færður inn í forhitaðan ofn og bakaður í 30-40 mínútur - þangað til tómatsósan er farin að sjóða í mótinu. Borið fram með hvítlauksbrauði - keyptum bara baguettu út í búð sem við skárum í helminga og pensluðum með hvítlauksolíu og bökuðum inn í ofninum í 10-15 mínútur þangað til fallega gullið á litinn. Við erum ennþá svo heppinn að það vex kál í matjurtagarðinum mínum - þannig að við söfnuðum nokkrum tegundum af káli sem við veltum upp úr einfaldri sítrónuvinagrettu. Með matnum drukkum við ágætisvín, sem við höfum haft nokkrum sinnum á borðum áður - seinast í sumar. Ég hefði kannski átt að vera með ítalskt vín með matnum en þetta vín passaði líka mjög vel með matnum. Þetta er vín frá Argentínu - nálægt Andesfjöllum eins og nafnið gefur til kynna: Terrazas de los Andes Malbec Reserva, sem er frá árinu 2008. Þetta vín er dökkt í glasi. Talsverður ávöxtur og krydd í nefið sem kemur líka fram í bragðinu. Gott eftirbragð - jarðbundið og langt. Bon appetit!
Dagurinn hefur verið æðislegur í alla staði. Reykjavíkurmaraþonið gekk vel hjá feðgunum og bræðurnir náðu að safna 306 þúsundum fyrir Neistann. Það veitir okkur mikla gleði að það hafi safnast svon…
Ég sá þessa uppskrift á sænsku matarbloggi sem ég fylgist reglulega með. Þegar ég prófaði þennan rétt í fyrsta sinn var ég svolítið vantrúuð á að hann væri góður. En annað kom á daginn, rétturinn v…
Það er hægt að nota japanskt majonnes á marga vegu. Í þessari uppskrift snöggsteikjum við þunnar kjúklingabringur og berum síðan fram með sinnepsósu úr japönsku majonnesi og frönsku sinnepi.
Ég keypti nautaribeye í versluninni Til sjávar og sveita. Þar sem að við voru að fara í bústað í eina viku þá lét ég þá vakúmpakka því kjöti sem ég keypti. Þá geymist það í kæli í allavega viku. Kj…