„Þetta er algjör lúxusuppskrift því það þarf ekkert annað að gera um morguninn en að setja ofnskúffuna inn í heitan bakaraofninn og bíða eftir að bökunarlyktin fylli húsið. Hálftíma síðar eru nýbakaðir kanilsnúðar komnir á borðið sem þú getur annað hvort smurt með Nutella, gert glassúr eða einfaldlega sigtað flórsykur yfir áður en þeir eru bornir fram.“